Jón Arnór sneri aftur í sigurleik

Jón Arnór Stefánsson er kominn á ferðina á nýjan leik …
Jón Arnór Stefánsson er kominn á ferðina á nýjan leik eftir meiðsli. mbl.is/Golli

Jón Arnór Stefánsson, sem hefur verið frá keppni frá því um mánaðamótin vegna meiðsla, sneri aftur í lið Unicaja Málaga í kvöld, fyrr en búist var við, og tók þátt í sigri liðsins á Cedevita Zagreb í Meistaradeild Evrópu í körfuknattleik.

Unicaja vann leikinn með níu stiga mun, 82:73 eftir að hafa haldið Cedevita í 10 stigum í lokafjórðungnum en aðeins munaði þremur stigum áður en hann hófst.

Jón Arnór kom lítið við sögu í leiknum en spilaði 3 og hálfa mínútu og átti eina stoðsendingu.

Unicaja hefur unnið fjóra af sex leikjum sínum til þessa og er jafnt Maccabi Tel Aviv að stigum. CSKA Moskva er efst með fullt hús stiga en leiknar eru tíu umferðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert