Tæplega 250 stiga leikur

Dirk Nowitzki fagnar.
Dirk Nowitzki fagnar. AFP

Það var mikið fjör í Dallas í nótt þegar Los Angels Lakers var þar í heimsókn í NBA-körfunni. Lokatölur urðu 140:106 fyrir heimamenn í Dallas og gerðu liðin því samtals 246 stig í leiknum.

Ætla hefði mátt að einhverjir leikmenn hefðu skorað mjög mikið en svo var ekki, þetta skiptist nokkuð bróðurlega milli manna. Nowitzki var stigahæstur með 23 stig fyrir Dallas.

Cleveland tapaði enn einum leiknum en LeBron James og félögum gengur erfiðlega að finna taktinn og hefur liðið aðeins sigrað í fimm af fyrstu ellefu leikjum sínum.

Úrslit leikja næturinnar urðu þessi:

Dallas - Lakers 140:106
Charlotte - Orlando 100:105
76ers - Phoenix 96:122
Atlanta - Detroit 99:89
Toronto - Millwakee 124:83
Memphis - Boston 117:100
Minnesota - Spurs 92:121
Oklahoma - Nets 92:94
Washington - Cleveland 91:78
Denver - New Orleans 117:97
Golden State - Utah 101:88
Portland - Chicago 105:87

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert