Jón Arnór og félagar áfram við toppinn

Jón Arnór Stefánsson kom til Unicaja nú í haust.
Jón Arnór Stefánsson kom til Unicaja nú í haust. mbl.is/Golli

Unicaja Málaga, lið Jóns Arnórs Stefánssonar, gefur ekkert eftir í baráttunni við Real Madrid og Barcelona á toppi spænsku 1. deildarinnar í körfuknattleik.

Í kvöld vann Unicaja sigur á Valencia á útivelli, 75:64. Liðið var sex stigum yfir í hálfleik, 39:33, og jók muninn í 12 stig í þriðja leikhluta, 60:48.

Jón Arnór, sem er nýkominn af stað aftur eftir meiðsli, skoraði 4 stig í leiknum og tók 2 fráköst. Hann spilaði rétt rúmar 10 mínútur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert