Sigurður snýr aftur

Sigurður Ingimundarson hleypur í skarðið fyrir Helga Jónas í Keflavík.
Sigurður Ingimundarson hleypur í skarðið fyrir Helga Jónas í Keflavík. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Sigurður Ingimundarson mun stýra Keflvíkingum í Dominosdeild karla í körfubolta og leysa Helga Jónas Guðfinnsson af hólmi sem hefur verið að glíma við veikindi og þurfti að taka sér frí vegna þeirra.

Sigurður vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Samkvæmt heimildum mbl.is mun hann áfram stýra kvennaliði Keflavíkur.

Helgi Jónas tók við liði Keflvíkinga fyrir tímabilið en í leik gegn ÍR fyrir skömmu þurfti hann að yfirgefa íþróttahúsið vegna hjartsláttartruflana. Keflavík er í fjórða sæti deildarinnar með átta stig.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert