Durant og Westbrook byrjaðir að æfa á ný

Kevin Durant og Russell Westbrook
Kevin Durant og Russell Westbrook AFP

Kevin Durant og Russell Westbrook, lykilmenn Oklahoma City Thunder, í NBA-deildinni eru báðir byrjaðir að æfa með liðinu á nýjan leik en þeir hafa báðir verið frá vegna meiðsla.

Scott Brooks, þjálfari liðsins, tjáði blaðamönnum að Westbrook gæti jafnvel verið með á föstudaginn en ástand hans verður skoðað betur á morgun. Westbrook er að jafna sig af handleggsbroti og hefur misst af þrettán leikjum.

Durant brotnaði á hægri fæti og gæti einnig orðið leikfær fljótlega ef vel gengur. Brooks ítrekaði þó að þeim yrði ekki teflt fram fyrr en þeir yrðu orðnir 100% heilir heilsu.

Oklahoma hefur verið eitt sterkasta lið deildarinnar síðustu árin en er nú á botni Vesturdeildarinnar vegna meiðsla þessara tveggja stjörnuleikmanna með aðeins þrjá sigra í fimmtán leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert