Ekkert lát á velgengni Tindastóls

Leikstjórnandinn Pétur Rúnar Birgisson skoraði 13 stig og gaf 4 …
Leikstjórnandinn Pétur Rúnar Birgisson skoraði 13 stig og gaf 4 stoðsendingar. Morgunblaðið/Árni Sæberg

Velgengni Tindastóls í Dominos-deild karla í körfuknattleik heldur áfram en í kvöld vann liðið stórsigur á Snæfelli á Króknum 104:77.

Myron Dempsey var stigahæstur að þessu sinni með 27 stig og tók auk þess 12 fráköst. Helgi Freyr Margeirsson skoraði 15 stig og ungu mennirnir Pétur Rúnar Birgisson og Ingvi Rafn Ingvarsson  skiluðu auk þess 13 og 11 stigum.

Hjá Snæfelli voru þeir Sigurður Þorvaldsson og Stefán Karel Torfason báðir með 17 stig en Sigurður tók auk þess 12 fráköst.

Tindastóll er í öðru sæti deildarinnar á eftir Íslandsmeisturum KR en Snæfell er í 8. sæti.

Tindastóll - Snæfell 104:77

Sauðárkrókur, Úrvalsdeild karla, 04. desember 2014.

Gangur leiksins:: 5:4, 17:13, 23:16, 23:19, 26:19, 34:21, 40:23, 43:27, 50:35, 59:44, 66:49, 73:55, 79:57, 93:64, 98:68, 104:77.

Tindastóll: Myron Dempsey 27/12 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 15, Pétur Rúnar Birgisson 13, Darrel Keith Lewis 12/13 fráköst/6 stoðsendingar, Ingvi Rafn Ingvarsson 11/4 fráköst/5 stoðsendingar, Svavar Atli Birgisson 8/7 fráköst, Helgi Rafn Viggósson 6/11 fráköst/5 stoðsendingar, Sigurður Páll Stefánsson 5, Finnbogi Bjarnason 3, Þráinn Gíslason 2, Friðrik Hrafn Jóhannsson 2.

Fráköst: 35 í vörn, 16 í sókn.

Snæfell: Sigurður Á. Þorvaldsson 17/12 fráköst, Austin Magnus Bracey 17/6 fráköst, Stefán Karel Torfason 17/5 fráköst, Snjólfur Björnsson 8, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 7, Christopher Woods 4/10 fráköst, Viktor Marínó Alexandersson 3, Sindri Davíðsson 2, Sveinn Arnar Davíðsson 2.

Fráköst: 30 í vörn, 7 í sókn.

Dómarar: Jón Bender, Ísak Ernir Kristinsson, Hákon Hjartarson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert