Tap á gamla heimavellinum

Jón Arnór Stefánsson
Jón Arnór Stefánsson mbl.is/Golli

Jón Arnór Stefánsson og félagar í Unicaja urðu að játa sig sigraða á útivelli í Zaragoza í dag í spænsku deildinni í körfuknattleik. Lokatölur 82:76.

Jón Arnór var þarna að koma á sinn gamla heimavöll, en hann lék með Zaragoza. Allt gekk vel hjá gestunum og voru þeir 31:44 yfir í hálfleik en í þeim síðari gekk allt á afturfótunum og leikmenn Zaragoza gengu á lagið og komust í fyrsta sinn yfir, 71:70 þegar þrjár mínútur voru til leiksloka.

Jón Arnór gerði 12 stig í leiknum, tók tvö fráköst og átti þrjár stoðsendingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert