Nýr leikmaður til Fjölnis

Daron Lee Sims er farinn frá Fjölni
Daron Lee Sims er farinn frá Fjölni mbl.is/Árni Sæberg

Fjölnismenn hafa fengið til sín nýjan bandarískan leikmann í staðinn fyrir Daron Lee Sims sem lék með þeim í fyrri umferð Íslandsmóts karla í körfuknattleik. Karfan.is skýrir frá þessu.

Sá nýi heitir Jonathan Mitchell, tveggja metra hár miðherji, 27 ára gamall, og lék með Rutgers háskóla en spilaði með ungverska liðinu Falco á síðasta tímabili. Þar var hann með 11,7 stig og 4 fráköst að meðaltali í leik og góða nýtingu í 2ja stiga skotum.

Fjölnismenn sitja á botninum ásamt Skallagrími og ÍR með 4 stig og eiga harða fallbaráttu fyrir höndum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert