Gasol-bræður í byrjunarliðum Stjörnuleiksins?

Marc Gasol
Marc Gasol AFP

Spænsku bræðurnir, Pau og Marco Gasol, gætu báðir verið í byrjunarliðum í Stjörnuleik NBA-deildarinnar í Madison Square Garden í febrúar. Spánn er sem kunnugt er með Íslandi í riðli í lokakeppni EM í Berlín í september.

Eins og atkvæðagreiðslan stendur eru bræðurnir í byrjunarliðunum. Pau í Austurdeildinni en hann leikur nú með Chicago en Marc í Vesturdeildinni en hann spilar með Memphis.

LeBron James hjá Cleveland og John Wall hjá Washington hafa fengið flest atkvæði í Austurdeildinni en hjá Vesturdeildinni eru þeir Stephen Curry hjá Golden State og Anthony Davis hjá New Orleans vinsælastir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert