Magnús æfði með Skallagrími

Magnús Þór Gunnarsson.
Magnús Þór Gunnarsson. mbl.is/Eva Björk

Magnús Þór Gunnarsson, fyrrverandi landsliðsmaður í körfuknattleik, æfði með úrvalsdeildarliði Skallagríms í gær en hann er samningslaus. 

Magnús og Grindvíkingar komust að samkomulagi á dögunum um að Magnús myndi hætta að leika með liðinu í Dominos-deildinni en hann gekk í raðir Grindavíkur síðasta sumar frá Keflavík. 

Finnur Jónsson, þjálfari Skallagríms, staðfesti að Magnús hefði æft með Borgnesingum í gær þegar mbl.is hafði samband við Finn en vildi ekki tjá sig frekar um í hvaða farvegi málið væri. 

Skallagrímur er í 10. sæti deildarinnar með 4 stig eða jafnmörg og neðstu liðin ÍR og Fjölnir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert