Magnaðir varnartilburðir - myndband

Ágúst Orrason sækir að körfu Tindastóls í leiknum í kvöld.
Ágúst Orrason sækir að körfu Tindastóls í leiknum í kvöld. Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson

Stefan Bonneau átti algjöran stórleik fyrir Njarðvík í kvöld þegar liðið vann Tindastóll í framlengdum leik í Dominos-deildinni í körfubolta, 107:99. Varnartilburðir hans vöktu ekki síður athygli.

Bonneau skoraði 44 stig í leiknum, tók 9 fráköst og átti 8 stoðsendingar. Hann lét líka til sín taka í vörninni eins og myndbandið hér að neðan sýnir þar sem Bonneau eltir uppi Viðar Ágústsson og ver skot hans með tilþrifum. Sjón er sögu ríkari en myndbandið má einnig sjá á vef SportTV sem sýndi leikinn í beinni útsendingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert