Haukar voru miklu betri

„Við töpuðum einfaldlega fyrir betra liði í kvöld. Haukar voru miklu betri en við,“ sagði Bjarni Magnússon, þjálfari körfuknattleiksliðs ÍR, eftir tapið gegn Haukum á Ásvöllum í kvöld.

Bjarni sagði að það eins sem hægt væri að taka jákvætt úr þessum leik væri að menn tækju sig saman og mættu almenninlega til leiks í næstu umferð þegar liðið tekur á móti Skallagrími. „Það komu líka ungir strákar inn á og stóðu sig vel, en ég er ekki sáttur með framlag margra lykilmanna í mínu liði,“ sagði Bjarni og lét að því liggja að kannski hafi menn verið komnir með hugann við leikinn við Skallagrím.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert