Þetta verður eitthvað

„Þetta verður eitthvað í Njarðvík á fimmtudaginn,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkinga, eftir tapið í Garðabæ í kvöld í fjórða leiknum við Stjörnuna í átta liða úrslitum Dominosdeildar karla í körfuknattleik.

„Við þurfum aðeins að kíkja á nokkra hluti sem mér fannst hefðu mátt fara betur í kvöld og við verðum búnir að kippa því í liðinn fyrir fimmtudaginn. En ég á ekki von á öðru en sá leikur verði eins og hinir fjorir, spenna alveg fram á loka sekúndu og það er gott fyrir körfuboltann þó svo maður hefði sem þjálfari alveg viljað klára þetta í þremur leikjum,“ sagði Friðrik Ingi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert