Jóhann þjálfar Grindvíkinga

Jóhann Ólafsson, til vinstri, og Guðmundur Bragason, til hægri, við …
Jóhann Ólafsson, til vinstri, og Guðmundur Bragason, til hægri, við undirskriftina. Ljósmynd/umfg.is

Jóhann Ólafsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Grindavíkur í körfuknattleik en hann tekur við af Sverri Þór Sverrissyni sem er hættur með liðið eftir að hafa þjálfað það undanfarin ár.

Jóhann hefur verið aðstoðarþjálfari Grindavíkurliðsins undanfarin ár en hann fær nú með sér einn reyndasta körfuknattleiksmann Grindavíkur og landsins frá upphafi, Guðmund Bragason. Guðmundur var áður spilandi þjálfari Grindvíkinga tímabilin 1993-94 og 1998-99.

Frá þessu er greint á vef Grindvíkinga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert