Unicaja Málaga, lið Jóns Arnórs Stefánssonar, tapaði í gærkvöld fyrir Baloncesto Sevilla, 75:70, í spænsku úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik.
Jón Arór lék í tæpar 14 mínútur og skoraði 7 stig, tók fjögur fráköst og átti eina stoðsendingu.
Unicaja Málaga er þrátt fyrir tapið í toppsæti deildarinnar. Liðið hefur unnið 24 leiki en tapað 5. Real Madrid hefur unnið 23 en tapað 5 og Barcelona er í þriðja sætinu.