Það verða Golden State Warriors og Cleveland Cavaliers sem leika til úrslita um NBA-meistaratitilinn í körfuknattleik þetta árið. Fyrsti leikur er aðfaranótt 5. júní kl. 1.
Golden State kom sér í úrslitin í nótt með því að vinna 104:90-sigur á Houston Rockets, og þar með einvígi liðanna 4:1. Þetta er í fyrsta sinn í 40 ár sem Golden State vinnur Vesturdeildina og kemst í úrslitin.
„Af hverju ekki við? Okkar fólk er búið að bíða í 40 ár. Ég held að það sé komið að okkur,“ sagði Stephen Curry eftir leik, en hann fór fyrir Golden State eins og svo oft áður í vetur og skoraði 26 stig og tók 8 fráköst.
James Harden náði ekki að fylgja eftir stórleik sínum í eina sigri Houston í einvíginu. Hann hitti úr 2 af 11 skotum í teignum og engu af þremur þriggja stiga skotum. Dwight Howard var stigahæstur hjá Houston með 18 stig og hann tók 16 fráköst.