Reyndir menn úr leik á Smáþjóðaleikunum

Martin Hermannsson er einn af framtíðarmönnum landsliðsins.
Martin Hermannsson er einn af framtíðarmönnum landsliðsins. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Þjálfarar A-landsliðs karla í körfuknattleik hafa valið þá 12 leikmenn sem taka þátt í Smáþjóðaleikunum í ár sem fram fara hér á landi 1.-6. júní.

Jón Arnór Stefánsson verður ekki með, þar sem hann er að spila í úrslitakeppni spænska körfuboltans. Þá eru Pavel Ermolinskij, Hörður Axel Vilhjálmsson og Haukur Helgi Pálsson ekki með, en þeir eru að glíma við meiðsli.

Landslið karla á Smáþjóðaleikunum 2015 verður skipað eftirtöldum leikmönnum:

Axel Kárason - Svendborg, Danmörk · Framherji · f. 1983 · 192 cm · 34 landsleikir
Brynjar Þór Björnsson · KR · Bakvörður f. 1988 · 192 cm · 39 landsleikir
Elvar Már Friðriksson - Barry University USA / Njarðvík · Bakvörður · f. 1994 · 182 cm · 8 landsleikir
Helgi Már Magnússon - KR · Framherji · f. 1992 · 192 cm · 80 landsleikir
Hlynur Bæringsson – Sundsvall Dragons, Svíþjóð Miðherji · 1982 · 200 cm · 79 landsleikir
Jakob Örn Sigurðarson - Borås, Svíþjóð · Bakvörður f. 1982 · 190 cm · 67 landsleikir
Kristófer Acox – Furman University USA / KR Framherji · f. 1993 · 196 cm · Nýliði
Logi Gunnarsson – Njarðvík Bakvörður f. 1981 · 192 cm · 105 landsleikir
Martin Hermannsson – LIU University USA / KR Bakvörður · f. 1994 · 190 cm · 19 landsleikir
Ragnar Ágúst Nathanaelsson – Sundsvall Dragons (á leið í Þór Þ.) Miðherji · f. 1991 · 218 cm · 19 landsleikir
Sigurður Ágúst Þorvaldsson - Snæfell Framherji · f. 1980 · 202 cm · 53 landsleikir
Ægir Þór Steinarsson - Sundsvall Dragons, Svíþjóð Bakvörður · f. 1991 · 182 cm · 17 landsleikir

Þjálfari liðsins er Craig Pedersen.

Aðstoðarþjálfarar eru Arnar Guðjónsson og Finnur Freyr Stefánsson.

Þeir sem æfa ennþá með liðinu í kringum leikana:

Ólafur Ólafsson - Grindavík (á leið til St Clement, Frakklandi)
Hörður Axel Vilhjálmsson – Mitteldeutscher BC, Þýskaland (á við meiðsl að stríða)
Pétur Rúnar Birgisson – Tindastóll
Sigurður Gunnar Þorsteinsson - Solna Vikings, Svíþjóð

Aðrir leikmenn sem voru í æfingahóp:

Dagur Kár Jónsson - Stjarnan
Darri Hilmarsson - KR
Emil Barja - Haukar
Finnur Atli Magnússon - KR
Grétar Ingi Erlendsson – Þór Þorlákshöfn
Haukur Helgi Pálsson – LF Basket, Svíþjóð (meiddur)
Jón Arnór Stefánsson - Unicaja Malaga, Spánn (ennþá að spila með félagsliði)
Jón Axel Guðmundsson - Grindavík
Matthías Orri Sigurðarson – Colombus State University / ÍR (meiddur)
Pavel Ermolinskij – KR (meiddur)
Sveinbjörn Claessen – ÍR
Tómas Heiðar Tómasson – Þór Þ. (á leið í Stjörnuna)
Tryggvi Snær Hlinason – Þór Akureyri

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert