LeBron James á frjálsri sölu í sumar

LeBron James.
LeBron James. AFP

LeBron James, einn besti körfuknattleiksmaður heims, verður á frjálsri sölu í sumar eftir að hafa ákveðið að nýta ekki lokaár samnings síns við Cleveland.

LeBron gerði tveggja ára samning við Cleveland í fyrrasumar með klásúlu sem gaf honum leyfi til að ganga úr samningnum eftir eitt ár og hann hefur nýtt þá klásúlu. James mun þó að öllum líkindum semja aftur við Cleveland og gera svipaðan samning en hann getur þénað talsvert meiri pening á stuttum samningum heldur en ef hann skrifaði undir langtímasamning.

LeBron James mun þó ekki semja við Cleveland án tafar því hann vill bíða og sjá hvort Cleveland geri góða hluti á markaðnum í sumar áður en hann semur að nýju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert