Ísland gæti mætt Evrópumeisturunum

Helena Sverrisdóttir og stöllur í íslenska kvennalandsliðinu verða í eldlínunni.
Helena Sverrisdóttir og stöllur í íslenska kvennalandsliðinu verða í eldlínunni. Mbl.is/Styrmir

Næstkomandi laugardag verður dregið í riðla fyrir undankeppni Evrópumóts kvenna sem fer fram árið 2017 í Tékklandi. Ísland er skráð til leiks og er í fjórða styrkleikaflokki, en dregið verður í Munchen í Þýskalandi.

Er þetta í fyrsta sinn frá undankeppninni 2009 sem Ísland er skráð til leiks. Ísland er í fjórða og neðsta styrkleikaflokki ásamt Hollandi, Lúxemborg, Sviss, Bosníu og Hersegóvínu og Albaníu.

Dregið verður í níu riðla. Sex þeirra verða fjögurra liða og þrír þeirra þriggja liða. Efsta sætið í hverjum riðli fer áfram í lokakeppnina ásamt þeim sex liðum sem eru með bestan árangur í öðru sæti. Til að finna út hvaða lið standa best að vígi í öðru sæti verða úrslit leikja þess liðs sem endar í neðsta sæti í fjögurra liða riðlunum tekin út. Tékkland er komið áfram í i lokakeppnina þar sem þeir eru gestgjafar.

Því er ljóst að stórþjóðir eru á leið til Íslands og nýkrýndir Evrópumeistarar Serba gætu verið eitt þeirra liða. Svíðþjóð er í öðrum styrkleikaflokki og Finnar í þeim þriðja.

Undankeppnin fer fram í þremur gluggum og verður fyrsti glugginn núna í nóvember. Annar í febrúar á næsta ári og svo lokaglugginn í nóvember 2016. Leikið er heima og að heiman.

Dagsetningar leikja:
Gluggi 1 – leikdagar 21. og 25. nóvember 2015
Gluggi 2 – leikdagar 20. og 24. febrúar 2016
Gluggi 3 – leikdagar 19. og 23. nóvember 2016

Styrkleikaflokkur 1:
1. Serbía
2. Frakkland
3. Spánn
4. Hvíta-Rússland
5. Tyrkland
6. Rússland
7. Svartfjallaland
8. Litháen
9. Slóvakía

Styrkleikaflokkur 2:
10. Grikkland
11. Króatía
12. Lettland
13. Svíþjóð
14. Ítalía
15. Úkranía
16. Ungverjaland
17. Pólland
18. Rúmenía

Styrkleikaflokkur 3:
19. Bretland
20. Belgía
21. Slóvenía
22. Portúgal
23. Búlgaría
24. Ísrael
25. Þýskaland
26. Eistland
27. Finnland

Styrkleikaflokkur 4:
28. Holland
29. Lúxemborg
30. Sviss
31. Bosnía og Hersegóvína
32. Albanía
33. Ísland

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert