Hvetja fólk til að kaupa landsliðsbúninginn

Jón Arnór Stefánsson í landsliðstreyjunni.
Jón Arnór Stefánsson í landsliðstreyjunni.

Ísland hefur leik á Eurobasket, lokakeppni EM í körfubolta á laugardag. Af því tilefni hvetur körfuknattleikssambandið fólk til að verða sér úti um búning íslenska landsliðsins og styðja strákana í réttu treyjunum.

Hægt er að kaupa búninginn í öllum helstu íþróttavörubúðum og á heimasíðu framleiðandans, errea.is.

Fólk er hvatt til að vera vel merkt hvort sem það ætlar að hvetja strákana úr stúkunni í Berlín eða heima í stofu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert