Jakob innsiglaði sigurinn

Jakob Örn Sigurðarson skoraði síðasta stigið í kvöld.
Jakob Örn Sigurðarson skoraði síðasta stigið í kvöld. mbl.is/Eva Björk

Jakob Örn Sigurðarson og félagar hans í Borås sigruðu ECE Bulls, 84:82, í FIBA Europe bikarnum nú í kvöld. Jakob skoraði síðasta stig Borås af vítalínunni þegar níu sekúndur voru eftir af leiknum. Hann skoraði níu stig í leiknum, tók þrjú fráköst og gaf fjórar stoðsendingar.

Jakob fékk tækifæri til að koma sínu liði í tveggja stiga forystu en hitti einungis úr einu víti af tveimur þegar níu sekúndur voru eftir. Gestirnir fengu því tækifæri til að jafna leikinn eða tryggja sér sigur en lokasókn þeirra fór forgörðum.

Þetta var þriðji sigur Jakobs og félaga í fimm leikjum og komst liðið á topp E-riðils með sigrinum, með 8 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert