Um 800 krakkar í körfubolta

Árlegt jólamót ÍR og Nettó í körfubolta fór fram um helgina í íþróttahúsi Seljaskóla, Hertz-hellinum. Tæplega 800 börn á aldrinum 6-11 ára mættu til leiks en í ár voru alls 167 lið skráð til keppni.

<br/><br/>

Dagskrá helgarinnar var að vonum þétt en ÍR-ingar telja að um 2.000 manns hafi lagt leið sína í Hertz-hellinn á laugardag og sunnudag.  Spilað var frá morgni til kvölds alla helgina. 

<br/><br/>

Myndirnar í rammanum hér að ofan koma frá ÍR og voru teknar á mótinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert