Borås, lið Jakobs Arnar Sigurðssonar, heimsótti Malbas í 12. umferð sænsku efstu deildarinnar í körfuknattleik í kvöld.
Lokatölur í leiknum urðu 80:64 Malbas í vil.
Jakob Örn skoraði níu stig, tók fimm fráköst og gaf eina stoðsendingu í leiknum. Leikmenn Borås hittu afskaplega illa í kvöld, en liðið var aðeins með 36,8% skotnýtingu í leiknum.
Þetta er annað tap Borås í röð, en liðið er í 4. sæti deildarinnar með 14 stig, sex stigum á eftir toppliði Sodertalje.