Jakob hafði betur gegn Hlyni

Jakob Örn Sigurðarson var með 14 stig fyrir Borås í …
Jakob Örn Sigurðarson var með 14 stig fyrir Borås í kvöld. Eva Björk Ægisdóttir

Jakob Örn Sigurðarson og liðsfélagar hans í Borås sigruðu Sundsvall 104:88 í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Það var hart barist í kvöld en Hlynur Bæringsson leikur með Sundsvall. Þeir voru báðir atkvæðamiklir í kvöld en Jakob var með 14 stig, 4 fráköst og 1 stoðsendingu á meðan Hlynur var með 16 stig, 6 fráköst og 1 stoðsendingu.

Borås tókst að komast upp fyrir Sundsvall með sigrinum en liðið er í 4. sæti með 28 stig á meðan Sundsvall er í 5. sæti með jafnmörg stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert