Helgi fær hlýjar kveðjur

Helgi Már Magnússon tekur skot í úrslitarimmunni og Finnur Atli …
Helgi Már Magnússon tekur skot í úrslitarimmunni og Finnur Atli Magnússon bróðir hans reynir að verjast. mbl.is/Styrmir Kári

Helgi Már Magnússon Íslandsmeistari í körfubolta hefur fengið hlýjar kveðjur á samskiptamiðlum eftir að Íslandsmótinu lauk. 

Helgi lætur nú staðar numið í boltanum og mun flytja til Bandaríkjanna í sumar. Margir samherjar og mótherjar úr boltanum hafa sent honum kveðjur á samskiptamiðlum frá því KR varð Íslandsmeistari á fimmtudagskvöldið. 

Hér er sýnishorn af þeim kveðjum sem Helgi hefur fengið á netinu:

Logi Gunnarsson, Njarðvík:

„Helgi Magnússon átti svo sannarlega skilið að fara út á toppnum. Mikill sigurvegari og fyrst og fremst frábær liðsmaður. Það er heiður að hafa spilað með honum í 15 ár með íslenska landsliðinu.“

Einar Árni Jóhannssson, Þór Þ.:

Í liðsíþrótt er leikmaður eins og Helgi Magnússon einfaldlega grand og auðvelt að una honum að klára ferilinn mögulega með sigri.“

Friðrik Ingi Rúnarsson, Njarðvík:

Sendi sérstakar kveðjur til Helga Magnússonar sem nú kveður, í bili hið minnsta. Frábær karakter sem öll lið vilja hafa í sínum röðum. Gangi þér og fjölskyldu þinni vel á nýjum slóðum.“

Falur Harðarson, fyrrverandi landsliðsmaður:

Til hamingju með enn einn titilinn í safnið. Til hamingju með einstaklega farsælan og flottan feril á körfuboltavellinum, það er eftirsjá af slíkum fagmanni.“

Ingi Þór Steinþórsson, Snæfelli:

Stórt respect á Helga Magnússon.“

Ítarlega er rætt við Helga í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert