Moggavarpið - Úrvalslið Íslands 1. þáttur

Guðbjörg Norðfjörð, varaformaður KKÍ, og Jón Björn Ólafsson, ritstjóri netmiðilsins Karfan.is, komu í heimsókn á hljóðver mbl.is og ræddu um niðurstöðuna í kosningu álitsgjafa Morgunblaðsins á Úrvalsliðum Íslands í körfuknattleik. 

Í meðfylgjandi hlaðvarpi/podcasti má hlýða á hvaða skoðanir Guðbjörg og Jón Björn höfðu á niðurstöðunni en Kristján Jónsson blaðamaður á íþróttadeild ræddi við þau. 

Úrvalsliðin voru kynnt í Morgunblaðinu á laugardaginn en blaðið mun einnig standa fyrir vali á Úrvalsliðum Íslands í bæði handbolta og fótbolta. Þá verður einnig umræða um þá niðurstöðu á Moggavarpinu hér á mbl.is. 

Morgunblaðið birtir Úrvalslið Íslands

Veldu þín Úrvalslið

Stuðningsmenn Íslands á EM í Berlín.
Stuðningsmenn Íslands á EM í Berlín. Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert