Sigurður samdi við KR-inga

Sigurður Þorvaldsson
Sigurður Þorvaldsson mbl.is/Ómar

Sigurður Þorvaldsson hefur gengið til liðs við Íslandsmeistara KR í körfuknattleik og skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram á visir.is.

 Sigurður, sem á að baki 57 A-landsleiki fyrir Íslands hönd, kemur til félagsins frá Snæfelli en hann gaf það út á dögunum að hann væri að flytjast á höfuðborgarsvæðið úr Stykkishólmi. Hann hefur einu sinni orðið Íslandsmeistari og tvisvar bikarmeistari með félaginu.

Sigurður er 35 ára gamall og er ætlað að fylla skarð Helga Más Magnússonar sem lagði skóna á hilluna eftir tímabilið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert