Nýliðar Þórs á Akureyri hafa fengið mikinn liðsstyrk fyrir átökin í Dominos-deild karla í körfuknattleik á næsta tímabili. Þór hefur fengið til sín bakvörðinn Ingva Rafn Ingvarsson frá Tindastóli.
Ingvi er 22 ára gamall og var í stóru hlutverki hjá Stólunum þegar þeir léku til úrslita við KR um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra. Hann ætti því að styrkja Þórsliðið umtalsvert þrátt fyrir að minna hafi borið á honum síðasta vetur.