Fjölnir safnar liði

Penninn var á lofti í Grafarvoginum í gær.
Penninn var á lofti í Grafarvoginum í gær. Ljósmynd/karfan.is

Kvennalið Fjölnis í körfuknattleik gerði í gær samning við níu leikmenn um að leika með liðinu í 1. deildinni næsta vetur.

Fjölnir framlengdi samninga við Kristínu Maríu Matthíasdóttur, Margréti Eiríksdóttur, Aníku Lindu Hjálmarsdóttur, Fanneyju Ragnarsdóttur, Snæfríði Birtu Eiríksdóttur og Friðmeyju Rut Ingadóttur, sem eru allar yngri uppaldir leikmenn.

Einnig fékk Fjölnir til liðs við sig Evu Maríu Emilsdóttur frá Stjörnunni, Berglindi Karen Ingvarsdóttur frá Breiðablik og Margréti Ósk Einarsdóttur úr Val.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert