Jeff Hornacek var í dag formlega kynntur til leiks sem nýr þjálfari New York Knicks í NBA-deildinni í körfuknattleik. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við liðið.
Hornacek var þjálfari Phoenix Suns frá 2013-2016 en hann var látinn fara þegar Phoenix ákvað að hefja endurbyggingarferli. Fyrsta tímabil hans hjá Phoenix var árangursríkt, liðið kom á óvart og sigraði 48 leiki en tókst ekki að komast í úrslitakeppnina á sögulega sterku tímabili fyrir Vesturdeildina í heild sinni.
New York hefur verið í endurbyggingu síðastliðin tímabil en vonast til þess að geta gert atlögu að sæti í úrslitakeppni NBA-deildarinnar á næsta tímabili með Carmelo Anthony og nýliðann Kristaps Porzingis í broddi fylkingar.