Frá Hetti til Þorlákshafnar

Tobin Carberry í leik með Hetti í vetur.
Tobin Carberry í leik með Hetti í vetur. Ljósmynd/Atli Berg Kárason

Þór frá Þorlákshöfn hefur samið við Tobin Carberry um að leika með liðinu á næstkomandi körfuboltavetri. Carberry hefur leikið tvö síðastliðin ár með Hetti frá Egilsstöðum.

Carberry, sem er bakvörður og 190 cm á hæð, skoraði 28,2 stig að meðaltali með Hetti sem féll úr efstu deild vetur en auk þess tók hann 9,3 fráköst, gaf 5,0 stoðsendingar og stal 2,3 boltum á leik.

Tobin er sterkur alhliða bakvörður sem að þekkir deildina hér heima vel. Hann lék mjög vel fyrir Hött á þessum tveimur árum sem hann lék með þeim og við teljum hann leikmann sem muni virka vel fyrir okkur. Hann er sterkur á hringinn og öflugur að búa til fyrir samherja sína og er auk þess flottur varnarmaður. Það fer einnig af honum þannig orð að hann sé frábær karakter sem að skiptir miklu máli í þessu. Það ríkir mikil ánægja með að fá þennan flotta íþróttamann til liðs við okkur,“ sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Þórs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert