Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar hjá Barcelona lét sig ekki vanta á annan leik meistara Golden State Warriors og Cleveland Cavaliers í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar í körfuknattleik í nótt.
Eftir leikinn fór vel á með Neymar og stjörnu Golden State, Stephen Curry, en meistararnir unnu stórsigur 110:77 og eru 2:0 yfir í einvíginu.
Þeir félagar skiptust meðal annars á treyjum og göntuðust fyrir framan myndavélarnar eins og sjá má hér að neðan.
🔝🎥 @neymarjr meets @StephenCurry30 during @NBA Finals
— FC Barcelona (@FCBarcelona) June 6, 2016
We ❤️ ⚽️ & We ❤️ 🏀 https://t.co/KxWJvplqty