Jeremy Lin á frjálsri sölu í sumar

Steph Curry og Jeremy Lin eigast við fyrir nokkrum árum.
Steph Curry og Jeremy Lin eigast við fyrir nokkrum árum. AFP

Íslandsvinurinn Jeremy Lin, leikmaður Charlotte Hornets í NBA-deildinni í körfuknattleik, verður á leikmannamarkaðnum í sumar.

Lin átti endurnýjun lífdaga sem „sjötti leikmaður“ Charlotte Hornets á síðasta tímabili eftir nokkur erfið ár hjá Houston Rockets og Los Angeles Lakers. Hann samdi við Charlotte til tveggja ára síðasta sumar en með þeirri klásúlu að hann gæti gengið út úr samningnum eftir eitt ár, en flestir leikmenn NBA-deildarinnar gera svoleiðis samninga.

Hann hefur lýst yfir vilja sínum til að semja við Charlotte á ný og virðist ákvörðun hans að segja sig úr samningi sínum vera helst til þess fallin að gera þénað eins mikið og mögulegt er, en hann samdi ódýrt við Charlotte í fyrrasumar.

Jeremy Lin braust fram á sjónarsviðið í janúar 2012 þegar hann var leikmaður New York Knicks. Áður hafði hann skoppað á milli liða á 10 daga samningum, en hann fékk tækifæri hjá New York, spilaði óvænt frábæran körfubolta og varð að stjörnu yfir nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert