Dwyane Wade semur við Bulls

Wade var hjá Miami Heat í 13 ár
Wade var hjá Miami Heat í 13 ár AFP

Körfuboltamaðurinn Dwyane Wade hefur gengið í raðir Chicaco Bulls eftir 13 ára dvöl hjá Miami Heat. Samningurinn er til tveggja ára og er 47,5 milljón dollara virði. 

„Þetta var ekki auðveld ákvörðun en ég tel mig hafa valið rétt,“ sagði Wade. 

Til að rýmka fyrir laun Wades hafa Chicaco Bulls skipt Jose Calderon til Los Angeles Lakers og Mike Dunleavy til Cleveland Cavaliers. 

Wade hafnaði samningi Miami Heat sem hljóðaði upp á 40 milljónir dollara til tveggja ára. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert