Jón og Kári í úrvalsliði mótsins

Kári Jónsson og Jón Axel Guðmundsson með viðurkenningar sínar í …
Kári Jónsson og Jón Axel Guðmundsson með viðurkenningar sínar í kvöld. Ljósmynd/fiba.com

Jón Axel Guðmundsson og Kári Jónsson voru í kvöld valdir í fimm manna úrvalslið B-deildar Evrópukeppni U20 ára karla í körfuknattleik, eftir úrslitaleik Íslands og Svartfjallalands í Chalkida í Grikklandi.

Jón og Kári voru í fararbroddi hjá íslenska liðinu sem fór á kostum í keppninni, vann fimm sterkar þjóðir og tryggði sér sæti í A-deildinni að ári. Svartfellingar unnu Íslendinga 78:76 í æsispennandi úrslitaleik mótsins í kvöld en þessar þjóðir fara ásamt Grikkjum upp í A-deildina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert