Níu leikmenn skrifa undir i Garðabænum

Stjarnan var með pennnann á lofti í vikunni.
Stjarnan var með pennnann á lofti í vikunni. Ljósmynd/Stjarnan

Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar skrifaði í vikunni undir samninga við níu leikmenn hjá meistaraflokki kvenna en undirskriftin átti sér stað í Mathúsi Garðabæjar.

Bryndís Hanna Hreinsdóttir, Erla Dís Þórsdóttir, Hafrún Hálfdánardóttir, Helena Mikaelsdóttir, Kristín Fjóla Reynisdóttir og Ragna Margrét Brynjarsdóttir er spiluðu með liðinu á sínu fyrsta ári í efstu deild síðasta vetur munu allar halda áfram með Stjörnunni.

Síðan bættust þrír nýir leikmenn í hóp Stjörnunnar en það eru þær Bríet Sif Hinriksdóttir úr Keflavík, Jónína Þórdís Karlsdóttir úr Val og Sunna Margrét Eyjólfsdóttir úr Haukum. Bríet Sif og Jónína Þórdís hafa báðar spilað unglingalandsleiki fyrir Íslands hönd og Sunna Margrét er ungur og efnilegur leikmaður sem er nú kominn aftur heim í Stjörnuna.

Á sama tíma var einnig skrifað undir samning við Odd Benediktsson um að vera aðstoðarþjálfari Péturs Más Sigurðssonar með meistaraflokk kvenna næsta vetur, en hann þjálfaði meistaraflokk kvenna hjá Hamri síðasta vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert