Pavel og Jakob ekki í landsliðshópnum

Hlynur Bæringsson er fyrirliði Íslands.
Hlynur Bæringsson er fyrirliði Íslands. AFP

Carig Pedersen og aðstoðarmenn hans, Arnar Guðjónsson og Finnur Freyr Stefánsson, tilkynntu í dag sextán manna landsliðshóp karlalandsliðs Íslands í körfuknattleik fyrir þá sex leiki sem framundan eru í undankeppni EM 2017.

Þessir sextán leikmenn mynda lokaæfingahóp landsliðsins í ár og munu leika leikina sex sem fraundan eru í undankeppni Euro Basket 2017 en leikið verður tvívegis gegn Sviss, Kýpur og Belgíu.

Athygli vekur að Pavel Ermolinskij leikmaður KR er ekki í hópnum en hann er að glíma við meiðsli.

Jakob Örn Sigurðarson, leikmaður Borås í Svíþjóð, gaf ekki kost á sér.

16 manna leikmannahópur:

Axel Kárason - Svendborg Rabbits, Danmörk
Brynjar Þór Björnsson - KR
Darri Hilmarsson - KR
Elvar Már Friðriksson - Barry University / Njarðvík
Haukur Helgi Pálsson - Rouen Metropole Basket, Frakkland
Hlynur Bæringsson - Sundsvall Dragons, Svíþjóð
Hörður Axel Vilhjálmsson - Rythmos BC, Grikkland
Jón Arnór Stefánsson - Valencia, Spánn 
Kristófer Acox - Furman University / KR
Logi Gunnarsson -Njarðvík
Martin Hermannsson - Étoile de Charleville-Mézéres, Frakkland
Ólafur Ólafsson - St. Clement, Frakkland
Ragnar Ágúst Nathanaelsson - Þór Þorlákshöfn
Sigurður Gunnar Þorsteinsson - Doxa Pefkon, Grikkland
Tryggvi Þór Hlinason - Þór Akureyri
Ægir Þór Steinarsson - San Pablo Inmobiliaria, Spánn

<strong>Leikmenn sem voru í upprunalega æfingahópnum:</strong>

Ari Gylfason · FSu

Austin Magnus Bracey · Snæfell

Björgvin Hafþór Ríkharðsson · ÍR

Björn Kristjánsson · KR

Breki Gylfason · Breiðablik

Dagur Kár Jónsson · St. Francis / Stjarnan

Emil Barja · Haukar

Eysteinn Bjarni Ævarsson · Höttur

Finnur Atli Magnússon · Haukar

<br/>

Gunnar Ólafsson · St. Francis / Keflavík

Hjálmar Stefánsson · Haukar

Jakob Örn Sigurðarson · Boras Basket, Svíþjóð (gaf ekki kost á sér)

Jón Axel Guðmundsson · Davidson / Grindavík

<div>Kári Jónsson · Drexler University / Haukar</div><div>Kristinn Pálsson · Marist University / Njarðvík</div>

Maciej Baginskij · Njarðvík

Matthías Orri Sigurðarson · Colombia University / ÍR

Pavel Ermolinskij · KR (meiddur)

Pétur Rúnar Birgisson · Tindastóll

Snorri Hrafnkelsson · KR

Stefán Karel Torfason · Snæfell

Tómas Heiðar Tómasson Holton · Stjarnan

Tómas Hilmarsson · Stjarnan

Valur Orri Valsson · Keflavík

Viðar Ágústsson · Tindastóll

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert