Hlynur og Jón Arnór hvíla

Jón Arnór Stefánsson hvílir í dag.
Jón Arnór Stefánsson hvílir í dag. AFP

Hlynur Bæringsson og Jón Arnór Stefánsson, landsliðsmenn í körfubolta, taka ekki þátt í leik liðsins gegn Austurríki á æfingamóti sem fer fram ytra í dag. Leikurinn hefst klukkan 16:00 að íslenskum tíma.

Ísland leikur á æfingamóti í Austurríki en liðið undirbýr sig þar fyrir undankeppni Evrópumótsins sem hefst síðar í þessum mánuði.

Íslenska liðið tapaði fyrir Póllandi í gær 82:71 og mætir Austurríki í dag en tveir lykilmenn eru hvíldir. Það eru þeir Hlynur Bæringsson og Jón Arnór Stefánsson.

Tryggvi Snær Hlinason spilar aftur á móti sinn fyrsta leik en leikurinn hefst klukkan 16:00 að íslenskum tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert