Ísland mætir Sviss í A riðli undankeppni Evrópumótsins í körfuknattleik 2017 kl 15.30 í dag að íslenskum tíma. Leikurinn er síðasti útileikur íslenska liðsins sem á enn góða möguleika á að komast á lokamótið. Leikurinn í dag er því mikilvægur á þeirri leið.
Leikið er í Fribourg í Sviss, en tvær breytingar eru á íslenska liðinu frá tapinu gegn Sviss á miðvikudag. Jón Arnór Stefánsson og Axel Kárason koma inn fyrir þá Ólaf Ólafsson og Ægi Má Steinarsson, sem liggur veikur.
Fylgst verður með gangi mála í beinni textalýsingu hér á mbl.is.