Jón Arnór spilar í kvöld

Ægir Þór Steinarsson, Logi Gunnarsson og Jón Arnór Stefánsson eru …
Ægir Þór Steinarsson, Logi Gunnarsson og Jón Arnór Stefánsson eru allir klárir í slaginn í kvöld. mbl.is/Eggert

Craig Pedersen, landsliðsþjálfari karla í körfubolta, og aðstoðarmenn hans hafa valið þá 12 leikmenn sem spila leikinn mikilvæga við Kýpur í Laugardalshöll í kvöld. Leikinn sem ræður úrslitum um það hvort Ísland geti komist í lokakeppni EM.

Eins og vonir stóðu til verður Jón Arnór Stefánsson með í leiknum, rétt eins og gegn Sviss ytra á laugardaginn, en hann missti af útileikjunum við Kýpur og Belgíu. Ægir Þór Steinarsson er einnig með eftir að hafa misst af leiknum í Sviss vegna veikinda.

Axel Kárason og Ólafur Ólafsson verða hins vegar ekki með í kvöld, þegar leikurinn hefst kl. 20.15.

Leikmannahópur Íslands:
Kristófer Acox, Furman University (BNA), 10
Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Larrissa (GRI). 51
Hlynur Bæringsson, Stjörnunni, 101
Jón Arnór Stefánsson, KR, 86
Ægir Þór Steinarsson, San Pablo Inmobiliaria (SPÁ), 38
Elvar Már Friðriksson, Barry University (BNA), 17
Hörður Axel Vilhjálmsson, án félags, 55
Logi Gunnarsson, Njarðvík, 128
Martin Hermannsson, Étoile de Charleville-Mézéres (FRA), 42
Haukur Helgi Pálsson, Rouen Metropole Basket (FRA), 47
Tryggvi Snær Hlinason, Þór Akureyri, 6
Brynjar Þór Björnsson, KR, 53

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert