Forsetinn faðmaði Kristófer

Guðni Th. Jóhannesson.
Guðni Th. Jóhannesson. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfubolta, féllust í faðma fyrir leik Íslands og Belgíu þegar Guðni heilsaði upp á leikmenn liðsins ásamt Sigurði Inga Jóhannssyni forsætisráðherra. Guðni var heiðursgestur leiksins.

Guðni var einnig heiðursgestur þegar Ísland sigraði Sviss í ágúst en þá gerði forsetinn þau mistök að heilsa öllum landsliðsmönnunum á íslensku nema Kristófer sem fékk kveðju á ensku. Guðni baðst í kjölfarið afsökunar á mistökunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert