Martin aftur í úrvalsliðinu

Martin Hermannsson með vítaskot í sigrinum á Belgíu í gær.
Martin Hermannsson með vítaskot í sigrinum á Belgíu í gær. mbl.is/Ófeigur

Martin Hermannsson hefur verið valinn í fimm manna úrvalslið lokaumferðar undankeppni EM karla í körfubolta.

Þetta er í annað sinn í undankeppninni sem Martin hlýtur þennan heiður, en hann átti frábæran leik í sigrinum góða á Belgíu í laugardalshöll í gær, þegar Ísland tryggði sér aftur sæti í lokakeppni EM. Þar skoraði Martin 18 stig, átti 5 stoðsendingar og tók 3 fráköst.

Auk þess sem Martin hefur nú tvívegis verið í úrvalsliði umferðar í undankeppninni var Hlynur Bæringsson í liði næstsíðustu umferðarinnar eftir frammistöðu sína gegn Kýpur á miðvikudagskvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert