Oddur frá næstu vikurnar

Oddur Rúnar Kristjánsson með boltann.
Oddur Rúnar Kristjánsson með boltann. mbl.is/Styrmir Kári

Oddur Rúnar Kristjánsson, leikmaður Njarðvíkur í Dominos-deild karla í körfuknattleik, verður frá næstu vikurnar eftir að hafa tognað illa á ökkla á æfingu. Víkurfréttir greina frá.

Óttast var að liðbönd hefðu skaddast í ökklanum en ekki var um svo alvarlegt tilfelli að ræða. Talið er að Oddur verði frá næstu fimm vikurnar. Þá er Stefan Bonneau enn stirður í hásin eftir að hafa slitið öðru sinni síðasta vetur og er enn í endurhæfingu.

Gunnar Örlygsson, formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, segir að það muni koma í ljós síðar í vikunni hvort Bonneau verði orðinn leikfær gegn Stjörnunni á föstudag en ljóst að engin áhætta verði tekin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert