Sigmundur í eldlínunni í Hollandi

Sigmundur Már Herbertsson
Sigmundur Már Herbertsson Ljósmynd/hag / Haraldur Guðjónsson

Körfuknattleiksdómarinn Sigmundur Már Herbertsson dæmir í kvöld leik Donar Groningen frá Hollandi og BCM Gravelines frá Dunkerque í Frakklandi er liðin mætast í riðlakeppni FIBA Europe-bikarsins.

Leikið er í Hollandi en um er að ræða fyrsta leik liðanna í B-riðli. 

Þeir Paulo Marques frá Portúgal og Sergey Krug frá Rússlandi eru meðdómarar Sigmundar í leiknum. Eftirlitsmaður er Patrick Flament frá Belgíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert