Martin stigahæstur í sigri

Martin Hermannsson
Martin Hermannsson mbl.is/Árni Sæberg

Martin Hermannsson dró vagninn fyrir lið sitt Charleville í frönsku B-deildinni í körfuknattleik í kvöld og var stiga- og stoðsendingahæstur í sigri liðsins á Ada Blois.

Martin setti niður 17 stig, þar af þrjá þrista, tók sex fráköst, og gaf þrjár stoðsendingar og var um leið einnig stoðsendingahæstur í sínu liði en hann spilaði í 30 mínútur.

Lokatölur urðu 72:65 á heimavelli Ada Blois en leikið var í Blois.

Martin hefur farið afar vel af stað með sínu liði í Frakklandi en hann setti til að mynda 26 stig í síðasta leik. Liðið hefur þar með unnið tvo fyrstu leiki sína í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert