Jakob öflugur í tapi

Jakob Örn Sigurðarson var með 14 stig.
Jakob Örn Sigurðarson var með 14 stig. Eggert Jóhannesson

Borås tapaði fyrir Norrköping 81:70 í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld en Jakob Örn Sigurðarson leikur fyrir Borås.

Borås hefur byrjað tímabilið ágætlega en fyrir leikinn var liðið með fimm sigra og fjögur töp, en liðið þurfti að sætta sig við tap í kvöld.

Jakob Örn var með 14 stig, 4 fráköst og 3 stoðsendingar en hann var einn besti maður vallarins í kvöld. Leiknum lauk með 81:70 sigri Norrköping Dolphins.

Norrköping er í þriðja sæti deildarinnar með sjö sigra og þrjú töp en Borås er með fimm sigra og fimm töp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert