Þórsarar slógu Tindastól úr leik

Darrel Lewis skorar í dag fyrir Þór án þess að …
Darrel Lewis skorar í dag fyrir Þór án þess að Antonio Hester fái rönd við reist. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Þór Akureyri er komið í 8-liða úrslit í bikarkeppninni í körfuknattleik eftir sigur á nágrönnum sínum frá Sauðárkróki í hörkuspennandi leik í Íþróttahöllinni á Akureyri nú síðdegis.

Gríðarlega vel var mætt á leikinn enda nágrannaslagur og mikið í húfi. Liðunum hefur báðum vegnað vel í Dominos-deildinni að undanförnu og bar leikurinn þess merki að bæði lið voru full af sjálfstrausti.

Liðin skiptust á að hafa forystu framan af leik en Tindastóll leiddi í hálfleik, 50:44. Í lokaleikhlutanum reyndust hins vegar heimamenn sterkari og sigldu að lokum heim 12 stiga sigri, 93:81.

Stigahæstur hjá heimamönnum í Þór Ak. var Darrel Keith Lewis með 31 stig og 8 fráköst en hjá gestunum var Antonio Hester atkvæðamestur með 32 stig og 11 fráköst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert