Sex stiga tap

Jakob Örn Sigurðarson í leik með íslenska landsliðinu.
Jakob Örn Sigurðarson í leik með íslenska landsliðinu. Eva Björk Ægisdóttir

Jakob Örn Sigurðarson og félagar hans í sænska körfuboltaliðinu Borås töpuðu 90:84 fyrir Jämtland í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Þetta var sjötta tap Borås í deildinni en liðið er þá með fimm sigra og er á ágætisróli í deildinni þrátt fyrir marga ósigra.

Jakob var öflugur fyrir Borås í kvöld en hann var með 6 stig, 5 fráköst og 5 stoðsendingar.

Borås er í fimmta sæti deildarinnar með 12 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert