Martin spilaði vel í naumu tapi

Martin í búningi Charleville.
Martin í búningi Charleville. Ljósmynd/David Henrot

Martin Hermannsson þurfti að sætta sig við naumt tap með liði sínu Charleville gegn Denain-Voltaire, 88:86, í frönsku B-deildinni í körfubolta í kvöld. 

Hann átti hins vegar ágætan leik þar sem hann skoraði tólf stig, tók tvö fráköst og átti tíu stoðsendingar. 

Þetta var fjórða tap Charleville í deildinni en þeir sita í 3. sæti deildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert