Óvæntur sigur hjá Memphis

Troy Daniels og félagar í Memphis Grizzlies unnu góðan sigur …
Troy Daniels og félagar í Memphis Grizzlies unnu góðan sigur í nótt. AFP

Memphis Grizzlies unnu nokkuð óvæntan sigur á Houston Rockets í nótt í NBA-deildinni í körfubolta er níu leikir fóru fram en lokatölur í Houston urðu 110:105, gestunum í vil.

Tony Allen, sem var bakvörður í leiknum setti niður fyrstu átta skot sín og var stigahæstur í þeirra liði með 22 stig. Þriggja stiga karfa Troy Daniels þegar 26 sekúndur voru eftir setti Memphis í þægilega 110:103 stiga forystu sem liðið hélt. Houston hefur 31 sigur í 4. sæti vesturdeildarinnar en Memphis 25 í 6. Sæti.

Þá hélt topplið austurdeildarinnar, Cleveland, sínu striki og vann Sacramento Kings 120:108 þar sem Kyrie Irving var stigahæstur með 26 stig.

Úrslit:

116:108 Milwaukee - Miami

132:113 Toronto - Brooklyn

102:93 Philadelphia - Charlotte

105:110 Houston - Memphis

96:86 Minnesota - Oklahoma

101:103 Atlanta - Boston

109:115 Portland - Orlando

108:120 Sacramento - Cleveland

110:77 Utah - Detroit

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert